

|
Búdapest - höfuðborg Ungverjalands - er ein af þessum virðulegu gömlu evrópsku borgum sem BNA-menn öfunda evrópubúa af. Og það er alveg ástæða til. Þarna kunnu menn að byggja!
Andréassy-breiðstrætð liggur um Pest þvera. Þar má sjá Óperuna og önnur merkileg hús.
Breiðstræti þetta má muna fífil sinn fegurri og enn á þjóðin langt í land með að vinna sig upp úr vandamálunum sem kommúnisminn olli því.
Konungshöllin er stórkostlegt mannvirki sem situr á (og í) hæð í Búda með útsýni yfir Dóná og slétturnar í Pest. Í konungshöllinni bjuggu aldrei neinir konungar en ýmsir konungar áttu þennan stað sem notalegan sumarbústað.
Meir að segja neðanjarðarlestin undir Andréassy-breiðstrætinu þykir það falleg að hún er á heimsmynjaskrá. Það myndi aftur á móti engum detta í hug að verðlauna kommúnísku neðanjarðarlestarstöðvarnar fyrir fegurð. |




















|
Kastalahæðin er þéttbyggð ekki bara ofanjarðar heldur líka neðan. Undir hennir liggur völundarhús af göngum og hellum sem hafa gegnt ýmsum hlutverkum, allt frá húsaskjóli fyrir milljónum ára yfir til hersjúkrahúss og loftvarnarbirgis í síðari heimsstyrjöldinni.
Núna gegnir það hlutverki einhverskonar listasafns þar sem póst-módernískir ungverskir listamenn fá að leika lausum hala. Margt skemmtilegt þó, t.d. safn af nútíma "steingervingum" sem sýna líf nútimamannsins (homo consumus) - sjá kókflösku"steingervinginn". |














|
Undir leiðsögn okkar einka-leiðsögumans, Alexei Ivanovits, gengum við í kringum konungshöllina.
Illfyglið fyrir aftan okkur er forfaðir allra Ungverja, Turul.
Að utan er höllin stórglæsileg með mikið af skreytingum og styttum. Hér má sjá frið (<-) og stríð (->) auk ýmissa fyrirmenna.
Í seinni heimsstyrjöldinni gegndi höllin hlutverki höfuðstöðva herráðs bæði þjóðverja og sovétmanna og var því stanslaust bombarderuð með sprengjum. Hún var því nokkuð illa farin eftir lætin og gerð upp af óstjórnlegu smekkleysi. Hún var augnstungin og innréttuð eins og kommúnísk neðanjarðarlestarstöð (->). Ekkert var gert til að reyna að endurbyggja hina stórkostlegu veislusali. |
































|
Fyrsti ungverski sagnfræðingurinn, hinn anonym notarius. |




|
Þessi kastali fyrir aftan mig sem lítur út eins og klipptur út úr ævintýrabók hýsir nú landbúnaðarsafn ungverja. Glæsileiki landbúnaðarsafnsins þyrmir dálítið yfir mann. Ímyndið ykkur að ganga inn í þennan kastalagarð fyrir 2-300 árum! |
|
Ungverjaland var tvisvar sinnum hernumið í seinni heimsstyrjöldinni og þó að þjóðverjar hafi ekki náð því á sitt vald fyrr en í ársbyrjun 1944 og hafi ekki haldið því í nema um það bil hálft ár þá tókst þeim samt að útrýma um 450.000 gyðingum á þeim tíma. Á tveimur mánuðum höfðu þeir fundið þá og smalað þeim saman upp í lest í útrýmingarbúðirnar. Ekki var vistin með kommúnistunum skárri og heldur lengri.
Til áminningar um þessa tíma hefur verið opnað hið umdeilda safn, hryllingshúsið. Ákveðið hús við Andréassy götu gegndi því lykilhlutverki fyrir báðar þessar hersetur að vera höfuðstöðvar leyniþjónustu og herlögreglu og ósegjanlegir hlutir áttu sér þar stað.
Það eru ekki nema 22 ár síðan síðasta manneskjan var líflátin undir stjórn þessarra harðstjóra. |


|
Hjálmar Gíslason & Margrét Dóra Ragnarsdóttir (c) 2007 |









Please wait while we load